ekki leyfa satan að stela því sem Guð hefur gefið þér

Drottinn er Góður og miskunn hans varir um eilífð

Já amen Guð er svo sannarlega góður yndislegur faðir sem þráir nærveru okkar, hann þráir að gefa okkur allt það besta í lífinu. Guð hefur svo sannarlega verið að sýna mér ást sína undanfarið og þvílík elska. Guð hefur verið að blessa mig ríkulega undanfarið og verið að sýna mér fyriráætlanir sínar með líf mitt, en ekki má gleyma að ekki aðeins er það Guð sem vill vera í lífi okkar óvinurinn Satan er þarna úti líka og hann er ekki sáttur með að við ætlum að leyfa Guði að ganga fram með fyriráætlanir sínar með okkur. Í hvert skipti sem Guð kemur með blessun reynir satan að stela henni frá okkur, það er enginn tilviljun að það fólk sem Guð notar mest hefur oft verið svo flækt í syndum allt sitt líf, því það er ekki bara Guð sem veit fyriráætlanir lífs okkar þær veit satan líka og hann hefur og mun gera allt í sínu valdi til að hindra okkur í að ganga með Guði.  Sjálf hef ég gengið í gegnum minn syndarpakka og fannst ég svo gjörsamlega ekki verðug neins en viti menn Guð er með stærri fyriráætlun fyrir líf mitt en ég get nokkurn tímann ýmindað mér.  Og aldrei hefði ég getað það sem ég hef áorkað án Drottins, svo sannarlega ræðst satan á mig og ég þarf stöðugt að vera á verði svo hann steli ekki og eyði því sem Guð hefur gefið mér.

Guð elskar þig og hann þráir að þú gangir með honum, slepptu fortíðinni og gakktu á móts við föður þinn á himnum leyfðu honum að gefa þér allt það besta í lífinu, losaðu takið sem satan hefur á þér.


Ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður- segir Drottinn- fyriráætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. jer. 29:11


Allt megna ég fyrir hjálp hans er mig styrkan gjörir fil 4:13


Guði er enginn hlutur um megn lúk 1:37


Ef vér segjum "vér höfum samfélag við hann" og göngum þó í myrkrinu, þá ljúgum vér og iðkum ekki sannleikann. 1 joh 1:6


Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum. róm 5:8


Sá sem talar flytji orð Guðs, sá sem þjónustu hefir skal þjóna eftir þeim mætti, sem Guð gefur, til þess að Guð vegsamist í öllum hlutum fyrir Jesúm Krist. 1 pet 4:11


Jesú sagði: sá ber mikinn ávöxt sem er í mér og ég í honum, en án mín getið þér alls ekkert gjört  joh 15:5


Jesú sagði: komið til mín, allir þér, sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. matt 11:28


Ég fulltreysti einmitt því að Guð sem byrjaði í yður góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists. fil 1:6




Guð hefur svo mikið fyrir ÞIG í dag ef þú aðeins játar það með munni þínum að hann er Drottinn þá mun hann svo sannarlega frelsa þig. Án hans erum við ekki neitt.

Jesú elskar þig og ekki leyfa satan að stela frá þér því sem Guð hefur gert haltu fast í það og notaðu sverðið sem er orð Guðs. Satan er sigraður það erum aðeins við sem veljum að hafa hann í lífi okkar svo veldu í dag, veldu að hasta á satan og reka hann úr lífi þínu.


Guð mun reynast sannorður þó sérhver maður reynist lygari !!!!!!!
Stundum gerum við okkur ekki grein fyrir því að satan er að leika sér með okkur og stela því sem Guð hefur gefið okkur!!! Verum því vakandi og opnum eyru okkar og hjörtu fyrir rödd Guðs !!!!



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já segðu þeim tugumþúsunda barna sem deyja á hverjum degi.. að master of the universe finnist þú vera meira spes en þau... segðu þetta líka við foreldra þessara barna...

DoctorE (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 12:55

2 Smámynd: Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir

hmmm Guð elskar alla, nákvæmlega eins og þeir eru, líka þig og öll þessi börn sem þú ert að tala um.

Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 22.11.2009 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband