Jólaboðskapur og jólakort fjölskyldunnar 2009

Lagður í jötu
En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar.
Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni sem var þunguð. En meðan þau voru þar kom sá tími er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu af því að eigi var rúm fyrir þau í gistihúsi.

Frelsari fæddur
En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því, sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu:
Dýrð sé Guði í upphæðum
og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.
Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins sögðu hirðarnir sín á milli: „Förum beint til Betlehem að sjá það sem gerst hefur og Drottinn hefur kunngjört okkur.“ Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið sem lá í jötu. Þegar þeir sáu það skýrðu þeir frá því er þeim hafði verið sagt um barn þetta. Og allir sem heyrðu undruðust það er hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það. Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það sem þeir höfðu heyrt og séð en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.

Látinn heita Jesús
Þegar átta dagar voru liðnir skyldi umskera hann og var hann látinn heita Jesús eins og engillinn nefndi hann áður en hann var getinn í móðurlífi.

Jesús færður Drottni
En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, en svo er ritað í lögmáli Drottins: „Allt karlkyns, er fyrst fæðist af móðurlífi, skal helgað Drottni,“ og til að bera fram fórn, eins og segir í lögmáli Drottins, „tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur“.

Símeon
Þá var í Jerúsalem maður er Símeon hét. Hann var réttlátur og guðrækinn og vænti þess að Guð frelsaði Ísrael. Heilagur andi var yfir honum og hafði hann vitrað honum að hann skyldi ekki deyja fyrr en hann hefði séð Krist Drottins. Að leiðsögn andans kom hann í helgidóminn. Og er foreldrarnir færðu þangað sveininn Jesú til að fara með hann eftir venju lögmálsins tók Símeon hann í fangið, lofaði Guð og sagði:
Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara
eins og þú hefur heitið mér
því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt,
sem þú hefur fyrirbúið í augsýn allra lýða,
ljós til opinberunar heiðingjum
og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Faðir hans og móðir undruðust það er sagt var um hann. En Símeon blessaði þau og sagði við Maríu móður hans: „Þessi sveinn er settur til falls og til viðreisnar mörgum í Ísrael. Hann verður tákn sem menn munu rísa gegn.
Sjálf munt þú sverði níst í sálu þinni. Þannig munu hugsanir margra hjartna verða augljósar.“

Anna
Og þar var Anna spákona Fanúelsdóttir af ætt Assers, kona háöldruð. Hún hafði lifað sjö ár með manni sínum þegar hann dó og síðan verið ekkja fram á áttatíu og fjögurra ára aldur. Hún vék eigi úr helgidóminum en þjónaði Guði nótt og dag með föstum og bænahaldi. Hún kom að á sömu stundu og lofaði Guð. Og hún talaði um barnið við alla sem væntu lausnar Jerúsalem.
Og er þau höfðu lokið öllu, sem lögmál Drottins bauð, sneru þau aftur til Galíleu, til borgar sinnar Nasaret. En sveinninn óx og styrktist, fylltur visku, og náð Guðs var yfir honum.

Jesús tólf ára
Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. Þegar hann var tólf ára fóru þau upp þangað eins og þau voru vön og tóku Jesú með sér. Þau voru þar út hátíðisdagana. En þegar þau sneru heimleiðis varð sveinninn Jesús eftir í Jerúsalem og vissu foreldrar hans það eigi. Þau hugðu að hann væri með samferðafólkinu og fóru eina dagleið og leituðu hans meðal frænda og kunningja. En þau fundu hann ekki og sneru þá aftur til Jerúsalem og leituðu hans.
Eftir þrjá daga fundu þau hann í helgidóminum. Þar sat hann mitt á meðal lærifeðranna, hlýddi á þá og spurði þá. En alla, sem heyrðu til hans, furðaði stórum á skilningi hans og andsvörum. Og er þau sáu hann þar brá þeim mjög og móðir hans sagði við hann: „Barn, hví gerðir þú okkur þetta? Við faðir þinn höfum leitað þín harmþrungin.“
Og hann sagði við þau: „Hvers vegna voruð þið að leita að mér? Vissuð þið ekki að mér ber að vera í húsi föður míns?“ En þau skildu ekki það er hann talaði við þau.
Og Jesús fór heim með þeim og kom til Nasaret og var þeim hlýðinn. En móðir hans geymdi allt þetta í hjarta sér. Og Jesús þroskaðist að visku og vexti og náð hjá Guði og mönnum.

jólakort 2009

Jólakveðja 2009

Kæru vinir við óskum ykkur Gleðilegra Jóla og farsæls komandi árs megi Drottinn blessa ykkur ríkulega á komandi ári og við þökkum góðar stundir á árinu sem er að líða 

Ragnar, Jóna, G.Gabríel og Atalía Von

Jólakveðja 2009 Hér á bæ eru allir komnir í blússandi jólaskap Guð er góður og kærleikurinn flæðir í hverjum krók og kima hér


Finnst dáldið vanta Gleðina í fólk í desember

jesus_care.jpgÉg hef verið að fylgjast með lífinu núna í Desember og verið að velta fyrir mér hvað varð um gleðina sem á að fylgja þessari hátíð ljóss og friðar, Afmæli frelsara okkar Jesú krists ??? Mér finnst fólk í desember vera að farast úr stressi yfir því sem því finnst það eiga eftir að gera, td jólahreingerninguna !! mér persónulega finnst bara alger óþarfi að vera að stressa sig á svona hlutum, í desember er mesta skammdegi ársins og í sjálfu sér sést það ekki ef það er smá ryk hér og þar, ég geri ekki neina sérstaka jólahreingerningu ég bara þríf eins og alla aðra mánuði í árinu þ.e þurrka af, skúra og þríf baðherbergið 1x í viku og svo þurrmoppa ég og þurrka af borðum og set í uppþvottavélina eftir þörfum. Er það ekki nóg, Og ég er nokkuð viss um að enginn myndi deyja ef ég sleppti að baka fyrir jólin. Mér finnst við hafa gleymt því að jólin og desember yfir höfuð er til að njóta samveru með fjölskyldu og vinum, styrkja og rækta þau sambönd. Og svo og að heiðra og lofa frelsara okkar sem fæddur er á jólunum, ég held að eimitt í desember þá fækkar fólki sem fer í kirkju frekar en að aukast og má kenna jólagjafa innkaupum, þrifum og bakstri um. 

Einnig hef ég orðið var við að neikvæðni er að drekkja okkur, hún er í fréttum allan daginn og í bloggum fólks, það er jú kreppa á fjármálamarkaðnum en það þýðir ekki að það þurfi að vera kreppa í hjörtum okkar, Gleðjumst yfir því sem við eigum, ég td er forrík, á yndislegan eiginmann, tvö yndisleg börn, yndislega foreldra, ömmu og afa, vini... og svo má lengi telja, og þetta allt er mun verðmætara en allir jepparnir og húsin í heiminum, að fá að vera saman um jólin það eru verðmæti, að vera á lífi það er verðmætara en allt heimsins gull, Að eiga föður okkar á himnum sem elskar okkur og vill okkur allt það besta er líka verðmætara en allt heimsins gull og í Guðríki er enginn kreppa því hann á allt gullið og silfrið, hristum því af okkur neikvæðnina og stressið og förum að líta okkur næst og sjáum öll raunverulegu verðmætinn og gleðigjafana í lífi okkar, Guð þráir að sjá okkur geisla af gleði leyfum okkur það.

yhst-93128105900816_2080_15073665.jpgFaðir þinn á himnum elskar þig með ævarandi elsku og hann þráir að fá að uppfylla öll loforð sín í þínu lífi ef þú vilt hleypa honum að. hann hefur líf fyrir þig til heilla en ekki óhamingju og það eina sem þú þarft að gera til að hann geti það er að játa það að Jesús er Drottinn opna hjarta þitt fyrir honum og leyfa honum að græða öll hjartasárin og kenna þér að lifa lífi í fullri gnægð Drottinn blessi þig og varðveiti og fylli líf þitt blessunum með kærri kveðju og ósk um

 wkfv-119-1.jpg

 


Þetta fékk fólk allavegana til að tala :)

Ég ætla ekki að dæma um hvort þetta sé siðferðislega rétt eða rangt en þetta svo sannarlega fékk fólk til að tala um Guð svona rétt fyrir jólin og eflaust hjálpar til við að fá fólk til að muna tilgang jólanna þ.e að fagna fæðingu Jesú krists frelsara okkar. Annars held ég að Jósep og María hafi verið ósköp venjulegt fólk eins og ég og þú, Guð valdi hana bara til að ganga með frelsara okkar þar fyrir utan var hún bara mannleg eins og við hin.
mbl.is Deilt um meydóm Maríu í Nýja-Sjálandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólin jólin jólin koma brátt ..........

wkfv-10z-1.gifJæja ég er komin í blússandi jólaskap, bóndinn að vinna og við mæðgurnar að baka og hlusta á jólalög bara ljúft, búnar að baka 2 sortir og ætlum jafnvel að baka meira í dag :). Er að bíða eftir að Gugga mín komi í heimsókn, og svo ætla ég að leyfa Guðmundi Gabríeli að skreyta piparkökur eftir skóla gaman gaman sá verður glaður Whistling Mikil gleði hér á bæ. Búið að versla allar jólagjafir nema eina eða tvær sem ástin mín sér um InLove allt jólaskraut komið upp og heimilið ilmar af ajax og smákökum ummmm gerist ekki betra ég var svei mér þá búinn að gleyma hvað það getur verið gaman að vera heimavinnandi húsmóðir. Nú er það bara að dekstra við ástina mína þegar hann er búinn í vinnunni, Elda sænskar kjötbollur með brúnni sósu og sultu jammí og eiga kózy kvöld með eiginmanninum. Svo er það samkoma annað kvöld ohhh get ekki beðið hlakka til að lofa Guð, húsdýragarðurinn á laugardaginn, klipping og neglur maður verður nú að vera sætur um jólin. Og svo samkoma aftur á sunnudaginn og hver veit nema við skellum okkur með krökkunum og mömmu og pabba á jólaball ;).

Jólin alveg að koma

Ljósmynd0069úff hvað tíminn er fljótur að líða hver man ekki eftir því þegar það var svo skelfilega langt að bíða eftir jólunum ?? en þegar maður er orðin fullorðin þá skyndilega flýgur tíminn áfram og jólin bara mætt áður en maður veit af. Ég er komin í blússandi jólaskap meira að segja jólatréð er komið upp á þessum bæ og svo byrjar jólabaksturinn á morgun jey hlakka bara til. ætla að baka, spesíur, súkklaði marengs toppa og kókostoppa. Svo ætlum við að skreyta piparkökur mæðginin :) bara fjör.

Þetta verða yndisleg jól í faðmi fjölskyldunar InLoveLoLGrinHeart


já sæll

hmmm hefði ekki verið betra að klæða sig betur hahahaha svona allavegana til að fá ekki lungnabólgu og blöðrubólgu hihihihihihihihihi var þó allavegana fyrir góðan málstað, held að það hefði nú samt ekkert verið verra að vera bara í jólasveinabúningum að hlaupa það hefði glatt augu barna mun meira Joyful
mbl.is Berir jólasveinar hlupu til góðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndisleg orð Föður okkar á himnum, smá pælingar á sunnudegi Drottinn blessi ykkur Ríkulega

12152_187856029498_753164498_3029728_3517420_n_940137.jpg
Sálmarnir 85:11

Elska og trúfesti mætast, réttlæti og

friðurkyssast.

Amen þetta er yndislegt vers sem allir

mættu tileinka sér.

 Síðan var ég að lesa í lúkasarguðspjalli þetta orð sem vakti athygli mína því við lifum jú á síðari tímum þó enginn nema Guð geti sagt nákvæma dagsetningu :)

Lúkasarguðspjall 21:25-33

Mannssonurinn kemur

Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný.Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heimsbyggðina því að kraftar himnanna munu riðlast.Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð.En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd.“


Gætið að fíkjutrénu

Jesús sagði þeim og líkingu: „Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám.Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður að sumarið er í nánd.Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.
Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt er komið fram.Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.

 Og svo þetta yndislega orð úr öðru jóhannesar bréfi sem á svo stóran part í hjartanu á mér, Tilgangur okkar hér á jörðunni er að elska hvort annað ekki, hata eða dæma. Kærleikurinn og Elska á að vera ríkjandi í hjarta okkar. Guð elskar okkur með ævarandi elsku.

Fyrirgefning syndanna, nýtt líf
Börnin mín! Þetta skrifa ég ykkur til þess að þið skulið ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum við málsvara hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta. Hann er friðþæging fyrir syndir okkar og ekki einungis fyrir syndir okkar heldur líka fyrir syndir alls heimsins.
Þá vitum við að við þekkjum hann ef við höldum boðorð Guðs. Sá sem segir: „Ég þekki hann,“ og heldur ekki boðorð hans er lygari og sannleikurinn er ekki í honum. En hver sem varðveitir orð Guðs, hann elskar sannarlega Guð á fullkominn hátt. Þannig þekkjum við að við erum í honum. Þeim sem segist vera í honum ber sjálfum að breyta eins og Jesús Kristur breytti.
Þið elskuðu, það er ekki nýtt boðorð sem ég rita ykkur, heldur gamalt boðorð sem þið hafið haft frá upphafi. Hið gamla boðorð er orðið sem þið heyrðuð. Eigi að síður er það nýtt boðorð, er ég rita ykkur, og sannindi þess birtast í honum og í ykkur því að myrkrið er að hverfa og hið sanna ljós er þegar farið að skína.
Sá sem segist vera í ljósinu og hatar bróður sinn, hann er enn þá í myrkrinu. Sá sem elskar bróður sinn býr í ljósinu og í honum er ekkert er leitt geti hann til falls    En sá sem hatar bróður sinn er í myrkrinu og lifir í myrkrinu og veit ekki hvert hann fer því að myrkrið hefur blindað augu hans.
Ég rita ykkur, börnin mín, af því að Guð hefur fyrirgefið ykkur syndir ykkar vegna Jesú Krists. Ég rita ykkur, foreldrar af því að þið þekkið hann sem er frá upphafi. Ég rita ykkur, unglingar, af því að þið hafið sigrað hinn vonda.
Ég hef ritað ykkur, börn, af því að þið þekkið föðurinn. Ég hef ritað ykkur,foreldrar,af því að þið þekkið hann sem er frá upphafi. Ég hef ritað ykkur, unglingar, af því að þið eruð styrkir og orð Guðs býr í ykkur og þið hafið sigrað hinn vonda.
Elskið hvorki heiminn né það sem í heiminum er. Sá sem elskar heiminn elskar ekki föðurinn. Því að allt sem maðurinn girnist, allt sem glepur augað, allt oflæti vegna eigna er ekki frá föðurnum heldur frá heiminum. Og heimurinn fyrirferst og fýsn hans en sá sem gerir Guðs vilja varir að eilífu.

Ég er þess fullviss að ef við lærðum að rækta okkar eigin garð og hlúa að honum í stað þess að benda á og argast yfir arfanum í garði náungans þá myndi heimurinn vera mun betri ! Ef við myndum læra að elska hvert annað og hætta að dæma hvort annað þá myndu mun fleiri nálgast Guð.

Svo hef ég verið að skoða undanfarið biblíuna og mikið er talað um Andkrist og er ég nokkuð viss um að margir slíkir ríkja hér á jörðu því heimurinn er að mörgu leiti orðin siðblindur og allt snýst um að fordæma með fordómum, ofbeldi og svívirðingum. Einnig upplifi ég að margir kristnir séu búnir að setja sig í sæti Guðs með því að dæma allt og alla, það er bara alls ekki okkar hlutverk langt frá þvi (
Matteusarguðspjall 7:1
Dæmið ekki svo þér verðið ekki dæmd. ) Við eigum bara að elska hvert annað Guð er fullfær um að sjá um allt hitt þ.e að dæma eða ekki dæma menn. Einnig er það Guð sem sníðir okkur til og agar það er ekki okkar verk að sníða aðra til og aga, Jesú mun ganga hér á jörðu aftur og vonandi verðum við búinn að skilja þessa hluti fyrir þann tíma :) því ég vil ekki vera dæmd eftir lögmálinu og mun því ekki dæma aðra.

Andkristur
Börn mín, hin síðasta stund er runnin upp. Þið hafið heyrt að andkristur kemur og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum við að það er hin síðasta stund. Þeir komu úr okkar hópi en heyrðu okkur ekki til. Ef þeir hefðu heyrt okkur til þá hefðu þeir áfram verið með okkur. En þetta varð til þess að augljóst yrði að enginn þeirra heyrði okkur til.
Þið þekkið öll sannleikann því að Hinn heilagi hefur smurt ykkur anda sínum. Ég hef ekki skrifað ykkur vegna þess að þið þekkið ekki sannleikann heldur af því að þið þekkið hann og af því að engin lygi getur komið frá sannleikanum.

Hver er lygari ef ekki sá sem neitar að Jesús sé Kristur? Sá er andkristurinn sem afneitar föðurnum og syninum. Hver sem afneitar syninum hefur ekki heldur fundið föðurinn.
Sá sem játar soninn hefur og fundið föðurinn. En haldið áfram að ígrunda boðskapinn sem þið heyrðuð í upphafi. Ef þið haldið stöðuglega við það sem þið heyrðuð í upphafi, þá munuð þið einnig vera stöðug í samfélagi við soninn og föðurinn. Og þetta er fyrirheitið sem hann gaf okkur: Hið eilífa líf.
Þetta hef ég skrifað ykkur um þá sem eru að leiða ykkur afvega. Andinn, sem Kristur smurði ykkur með, býr í ykkur og þið þurfið þess ekki að neinn kenni ykkur því andi hans fræðir ykkur um allt, hann er sannleiki en engin lygi. Verið stöðug í honum eins og hann kenndi ykkur.
Og nú, börnin mín, lifið í samfélagi við hann til þess að við getum, þegar hann birtist, átt djörfung og blygðumst okkar ekki fyrir honum þegar hann kemur. Þið vitið að hann er réttlátur. Þá skiljið þið einnig að hver sem iðkar réttlætið er barn Guðs.

Amen en er það réttlátt að dæma aðra ???

Og að lokum nokkur yndisleg ritningarvers um kærleikann sem vonar allt umber allt og fellur ALDREI úr gildi




Fimmta Mósebók 10:15
Eigi að síður beindist kærleikur Drottins að feðrum þínum einum svo að hann elskaði þá. Síðan valdi hann ykkur, niðja þeirra, úr öllum þjóðum og er svo enn í dag.

Orðskviðirnir 3:3
Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig. Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns,

Orðskviðirnir 10:12
Hatur vekur illdeilur en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.

Jesaja 54:10
Því að þótt fjöllin bifist og hæðirnar haggist mun kærleikur minn til þín ekki bifast og friðarsáttmáli minn ekki haggast, segir Drottinn sem miskunnar þér.

Hósea 4:1
Hlýðið á orð Drottins, Ísraelsmenn, því að Drottinn ákærir íbúa landsins þar sem í landinu er engin trúfesti, kærleikur né þekking á Guði.

Matteusarguðspjall 24:12
Og vegna þess að lögleysi magnast mun kærleikur flestra kólna.

Jóhannesarguðspjall 17:26
Ég hef kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra svo að kærleikur þinn, sem þú hefur auðsýnt mér, sé í þeim og ég sé í þeim.“

Rómverjabréfið 5:5
Og vonin bregst okkur ekki. Því að kærleikur Guðs hefur streymt inn í hjörtu okkar með heilögum anda sem okkur er gefinn.

Rómverjabréfið 13:10
Kærleikurinn gerir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn uppfylling lögmálsins.

Fyrra Korintubréf 8:1
sem fórnað hefur verið skurðgoðum. Við vitum að öll höfum við þekkingu. Þekkingin blæs menn upp en kærleikurinn byggir upp.

Fyrra Korintubréf 13:4
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.

Fyrra Korintubréf 13:8
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.

Fyrra Korintubréf 13:13
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.

Fyrra Korintubréf 16:24
Kærleikur minn er með yður öllum í Kristi Jesú.

Efesusbréfið 6:23
og kærleikur, með trúnni frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.

Filippíbréfið 2:1
Fyrst Kristur veitir kjark, fyrst kærleikur hans uppörvar, fyrst andi hans skapar samfélag, fyrst þar ríkir hlýja og samúð

Hebreabréfið 13:1
Bróðurkærleikurinn haldist.

Fyrra Pétursbréf 4:8
Umfram allt hafið brennandi kærleika hvert til annars því að kærleikur hylur fjölda synda.

Fyrsta Jóhannesarbréf 3:17
vera þurfandi og lýkur aftur hjarta sínu fyrir þeim, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum?

Fyrsta Jóhannesarbréf 4:7
Þið elskuðu, elskum hvert annað því að kærleikurinn er frá Guði kominn og hver sem elskar er barn Guðs og þekkir Guð.

Fyrsta Jóhannesarbréf 4:8
Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð því að Guð er kærleikur.

Fyrsta Jóhannesarbréf 4:9
Í því birtist kærleikur Guðs til okkar að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf.

Fyrsta Jóhannesarbréf 4:10
Þetta er kærleikurinn: Ekki að við elskuðum Guð heldur að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir okkar.

Fyrsta Jóhannesarbréf 4:12
Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef við elskum hvert annað þá er Guð í okkur og kærleikur hans er fullkomnaður í okkur.

Fyrsta Jóhannesarbréf 4:16
Við þekkjum kærleikann, sem Guð hefur á okkur, og trúum á hann. Guð er kærleikur og sá sem er stöðugur í kærleikanum er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum.

Annað Jóhannesarbréf 1:6
Kærleikurinn felst í að við lifum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þið heyrðuð það frá upphafi til þess að þið skylduð breyta samkvæmt því.

Síraksbók 11:15
Speki, þekking og skilningur á lögmálinu kemur frá Drottni, kærleikur og góðverk eru einnig frá honum


Megi Guð gefa ykkur yndislega viku og blessa ykkur ríkulega, megi hann úthella kærleika sínum yfir ykkur og gefa ykkur frið


Fordómar fordæmdir með fordómum hversu sjúkur er heimurinn sem við lifum í ??

Mig langar pínu að viðra skoðun mína, því mér blöskrar margt hér á þessum vef, ég hef verið að skoða umræður um þetta jólatónleika mál og mér finnst alveg merkilegt hvað margir virðast fordæma fordóma með fordómum, eru fordómar ekki alltaf fordómar ??? sama í hvaða garð fordómarnir eru mér er spurn, Fordómar eru alltaf ljótur leikur sama í hvaða mynd þeir eru, Eins upplifi ég kristið fólk oft setja sig í dómara sæti alveg eins og hinir ótrúuðu, Jú samkynhneigð er synd samkvæmt biblíunni það vita flestir sem eru frelsaðir, en lýgi, fordómar og þjófnaður er líka synd það eigum við sem eigum Jesú sem frelsara okkar að vita, það er ekki í höndum okkar trúuðu að útlista syndir hvers annars eða dæma fólk, við eigum einfaldlega að elska fólk til lífs, því Guð er svo sannarlega fullfær um að hreinsa okkur af syndum okkur án hjálpar frá okkur, einnig hef ég verið að velta fyrir mér þeim orðum sem ég las á einu blogginu að ef maður ætlaði að lifa í synd þá gæti maður ekki þjónað Guði ! en er það ekki Guðs að ákveða það ?? Ég veit persónulega að stundum bendir Guð okkur ekki á syndirnar okkar allar í einu heldur sníðir af okkur skemmdu greinarnar hægt og rólega og stundum upplifum við þar að leiðandi ekki syndina í lífi okkar sem synd fyrr en Guð (ekki menn) fer að sýna okkur hana. Og hvar hefur Guð betri aðgang að okkur til að hreinsa okkur og byggja upp en eimitt þegar við erum að þjóna honum ??? Hefur alveg gleymst að Guð Elskar alla alveg sama hver er hvað við erum ??? Og setur okkur skýra reglu um að elska hvert annað og dæma ekki hvort annað !!! Guð er Faðir okkar og elskar okkur skilyrðislaust !!!! 

Jesús er Drottinn :)

19_nov_09.jpg

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband