Svínaflensu sprautan !
26.11.2009 | 15:19
Jæja ég er búinn að láta bólusetja mig og fjölskylduna við svínaflensunni án nokkura vankvæða
var reyndar komin með smá kvíða hnút í magan í morgun. Maður er búinn að lesa svo mikinn hræðslu áróður gegn þessari sprautu að ég var orðin á báðum áttum
en tók svo ákvörðun í dag að skella mér börnunum og manninum og vona að sem flestir nýti sér þessa þjónustu þar sem hún er ókeypis í þokkabót. Og svo líka því fleiri sem eru bólusettir því meiri líkur eru á að úthýsa þessari flensu frá landinu.
Athugasemdir
flott hjá þér, og gott að til sé hugsandi fólk sem getur látið raklausan hræðsluáróður fljóta fram hjá sér án þess að hann hafi áhrif.
Egill, 26.11.2009 kl. 16:08
Eini hræðsluáróðurinn sem ég hef orðið var við er frá bóluefnaframleiðendum og erindrekum þeirra hjá WHO með fulltyngi fjölmiðla, búið að skapa mikla histeríu.
SeeingRed, 26.11.2009 kl. 16:25
og þetta var bara ekkert sárt ég er nefnilega ekki mikið fyrir sprautur
Ragnar Birkir Bjarkarson, 26.11.2009 kl. 16:37
já þetta gekk vel fyrir utan öskrin í Atalíu hún fyrirgefur gaurnum seint hahaha en einu aukaverkanirnar sem ég finn er rosalegur verkur í hendinni
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 27.11.2009 kl. 08:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.