Gleðileg Jól allir!!!

713941242_1198498889Langaði bara að óska ykkur gleðilegra jóla vona að allar óskir ykkar hafi ræst og allir hafi getað verið með ástvinum sínum og fjölskyldu Heart  Ég byrjaði daginn á að keyra út pakka með syni mínum og fengum við heitt súkkulaði og kökur hjá ömmu og afa svo  átti ég indælt kvöld með syni minum heima hjá foreldrum mínum. Er svo þakklát fyrir son minn og hann er svo sannarlega guðs Gjöf. Hann fékk auðvitað fullt af pökkum og var svo glaður og ánægður og það er jú fyrir öllu.

Við snæddum jú að sjálfsögðu dýrindis mat og drukkum malt og appelsín þetta ekta íslenska Grin. Og allir í sparifötunum og verð að segja þótt ég segji það sjálf þá er ég bara algjör skutla í jólafötunum mínum Kissing. En ég var auðvitað fljótlega komin í náttfötin sem ég fékk í jólagjöf frá Marra bró og Tinnu enda elska ég að kúra upp í sófa með góða bók á jólunum. Fékk náttúrulega nokkrar jólagjafir meðal annars náttföt, tvennar bækur, pappastjörnu (loftljós) geðveikt flott, bol, kertastjaka, litailmkerti, og victorian secret tösku með pure seduction línu í.  Svo á morgun er árlegt jólaboð hjá ömmu og afa og svo auðvitað jólasamkoma í krossinum kl 15.

ég fann svo littla sögu hér á netinu sem mig langaði að deila með ykkur hún er svo sönn !!!

Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum. Maður nokkur skammaði 3 ára gamla dóttur sína fyrir að eyða heilli rúllu af gylltum pappír í að skreyta lítinn kassa eða box sem hún setti undir jólatréð. Það var lítið til af peningum og hann sá eftir þeim í óþarfa að honum fannst. Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið þegar þau voru að útdeila gjöfunum og sagði: "Þetta er handa þér pabbi". 
 
Við það skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögðin deginum áður. En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt. Hann kallaði til dóttur sinnar og sagði: "Veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum box, þá á einhver gjöf að vera í því?"

Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: "Ó pabbi, en boxið er ekki tómt. Ég blés fullt af kossum í það. Bara handa þér pabbi."


Faðirinn varð miður sín. Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.

Sagan segir að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést og hún fór í gegnum eigur hans hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum við rúmstokkinn hans. Þar hafði hann haft það alla tíð; þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðan koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hafði gefið honum og sett í boxið. 

life is like a box of chocolate... You never know what your gonna get.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

Gleðileg Jól :)

Sigvarður Hans Ísleifsson, 25.12.2007 kl. 10:56

2 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Gleðileg jól sæta fjölskylda

Katrín Ósk Adamsdóttir, 26.12.2007 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband