Vá þvílíkur léttir

Vá var að fara í gegnum fyrstu 3 sporin í kvöld með sponsornum mínum og er að byrja á 4 spors listanum og vá þvílíkur léttir það er jafn yndislegt og það er erfitt að vinna í fortíðinni og byrja að skilja alkahólismann sinn betur 0 Og taka til í hausnum á sér.

Ég er farinn að sjá svo marga hluti í nýju ljósi og vá hvað ég var í engum bata og kominn tími til að breyta til. Vegna þess að þó ég geti ekki verið edrú nema með Guðs hjálp að þá verð ég að vera í AA prógramminu líka og vera stöðugt að framkvæma sporin td 12 sporið til að ég sé í bata og til að geta orðið algjörlega heilbrigð að nýju.  Þannig að nú ætla ég bara að demba mér í alsherjar sjálfsskoðun og ekki verða hissa þótt þú lendir í að ég vinni 9 sporið á þér 0 hahaha.

Líður mun betur núna og er staðráðinn í að halda áfram á þessari braut og gerði mér grein fyrir því að ég hef lent í það miklum skít um ævina að ég ætla ekki að láta þessa erfileika sem ég hef gengið í gegnum undanfarið buga mig lífið heldur áfram Guð blessaði mig með yndislegum syni sem á það skilið að mamma hans sé í fullkomnu lagi og sé í bata 0

Svo eru að koma Jól og ég er búinn að ákveða að ég ætla að eiga yndisleg jól með Syni mínum og fjölskyldu og munið að kærleikurinn breiðir yfir allt ég var minnt á það í kvöld að Guð er bara kærleikur og elska og Guð setur ekki vanblessanir í líf okkar.

Megi Drottinn blessa ykkur og gefa ykkur yndisleg Jól

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband