Guð nútímans ????

Var að lesa grein eftir fyrrverandi pastor minn í hvítasunnukirkjunni í Keflavík og varð eiginlega bara orðlaus, og langar svo í stað þess að dæma einn né neinn að segja mína upplifun Á því hvernig kristin trú á að vera og það sem við sem vitni Guðs eigum að vera að breiða út og það er KÆRLEIKUR Guð elskar alla alveg sama hvað eða hver þú ert, Guð fer ekki í manngreinaálit, Það er ekki okkar hlutverk að dæma náungann heldur elska hann, okkur ber að gefa af okkur eins og Jesú gerði, við eigum að elska fólk til lífs, Það er Guð einn sem getur snert hjarta okkar þannig að við finnum í hjarta okkar hvað er synd í okkar lífi og hvað ekki. Og Guð sýnir okkur, okkar eigin syndir ekki annara, það að breiða út boðskap Guðs er ekki að benda fólki á syndir sínar heldur að leyfa fólki að finna að Guð er svo sannarlega kærleikur við erum börnin hans, og hann elskar okkur án skilyrða algerlega.

Ég hef sjálf upplifað þennan dóm sem við Kristna fólkið erum, svo dugleg að kasta á fólk, en persónulega þá er ég alltaf að upplifa meira og meira með Guði sorgina yfir því að við erum stöðugt að ganga út úr náðinni sem Guð gaf okkur og undir lögmálið sem dó með Jesú á krossinum bara með því að dæma aðra og setja okkur þar í sæti Guðs. 

Megi Drottinn blessa ykkur og eigiði yndislegan dag 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Karlsdóttir

Gott að þú hefur fundið fyrir náð og nærveru Guðs. Það er ekkert sem toppar það. Okkur er sagt í Biblíunni að við eigum ekki að dæma og Jesús sagði sjálfur að hann væri ekki kominn til að dæma heiminn heldur frelsa hann. Guð er kærleikur eins og þú svo réttilega bendir á og óskar ekkert annað en að allir komi til hans og upplifi þennan kærleika og þá fyrirgefningu og náð sem hann gefur okkur í ómældu magni á hverjum einasta degi. Hann er yndislegur!

Edda Karlsdóttir, 9.7.2010 kl. 09:43

2 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Þetta er rétt sem þú segir, þú hefur væntanlega lesið fjallræðuna, en þar segir Jesú okkur að þeir dómar sem við fellum hitta okkur sjálf. Við eigum að virða hvert annað og elska, þannig gerum við vilja Guðs.

Jón Ríkharðsson, 9.7.2010 kl. 15:44

3 Smámynd: Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir

http://kiddikef.blog.is/blog/kiddikef/entry/1074112/

Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir, 9.7.2010 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband